Málstofa um gervigreind
- Frosti Jonsson

- 3 hours ago
- 1 min read
Við í Birtingahúsinu buðum viðskiptavinum okkar á málstofu um gervigreind og leitarvélar. Tilgangur málstofunnar var að fara yfir þær ótrúlega hröðu breytingar sem eru að eiga sér stað með tilkomu gervigreindar á borð við ChatGPT og Gemini og hvaða árhrif það hefur á sýnileika fyrirtækja og vörumerkja í leitarvélum.
Gervigreind er ekki bara á leiðinni – hún er þegar byrjuð að breyta því hvernig viðskiptavinir þínir finna fyrirtæki, vörur og þjónustu. Á málstofunni var farið yfir breytta leitarhegðun notenda, hvaða aðgerðir fyrirtæki geta gripið til svo hámarka megi sýnileika í gervigreindar-leitarvélum (GEO) og aðgerðaátætlun sem öll fyrirtæki ættu að huga að í ljósi þessara breytinga.

Agnar Freyr Gunnarsson og Agnes Ýr Pétursdóttir
Framsögu á fundinum höfðu þau Agnar Freyr Gunnarsson og Agnes Ýr Pétursdóttir, sérfræðingar á netmarkaðssviði Birtingahússins.











Comments