UV birtingar á útimiðlum
- Frosti Jónsson

- 3 hours ago
- 1 min read
Síðustu ár höfum við hjá Birtingahúsinu verið meira að prófa okkur áfram með birtingar sem byggja á rauntímagögnum. Við notuðum til dæmis rauntíma veðurupplýsingar til að stýra því hvernig auglýsingar hjá Krónunni birtust á umhverfismiðlum og kom það virkilega vel út. Bæði vakti það athygli og sýndi hversu öflug miðlunin getur orðið þegar skilaboð tengjast aðstæðum hverju sinni.
Núna höfum við tekið næsta skref með Lyfju og Púls Media með UV-tengdum birtingum þar sem auglýsingar á umhverfismiðlum breytast sjálfkrafa eftir því hversu lár/hár UV stuðullinn er hverju sinni.
Hvernig virkar þetta
Eftir því sem UV geislun sólarinnar eykst verða skilaboðin skýrari og minna fólk á mikilvægi þess að nota sólarvörn og þess að verja húðina betur gegn skaðlegum útfjólubláum geislum sólar.
UV-stuðull (e. UV Index) er alþjóðlegur mælikvarði á styrk útfjólublárrar (ÚF) geislunar frá sólinni. Hann gefur til kynna hversu mikil hætta er á húðskemmdum og augnskaða vegna sólarinnar á hverjum stað og stundu. Geislavarnir ríkisins mæla UV-stuðulinn á Íslandi. Hægt er að fylgjast með rauntímagildum og spám á vef Veðurstofu Íslands.
Umhverfismiðlar í dag eru því ekki lengur bara hefðbundin skilti heldur er hægt að gera miðilinn meira lifandi. Með því að tengja rauntímagögn eins og veður upplýsingar, UV stuðul eða aðrar ytri breytur er hægt að aðlaga skilaboðin þannig að þau verði markvissari við mismunandi aðstæður.







Comments