Heimsmeistaramótið í öðru ljósi
- Frosti Jónsson

- Jul 22
- 4 min read
Heimsmeistaramótinu í fótbolta þar sem spilað var í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó er nýlokið en Spánverjar fóru með sigur af hólmi eftir 1-0 sigur í framlengdum leik gegn Argentínu. Heimsmeistaramótið í knattspyrnu er vafalítið stærsti íþróttaviðburður heims en áætlað er að um 2 milljarðar hafi fylgst með úrslitaleiknum í beinni útsendingu, um 500 milljón fleiri en horfðu á Messi og félaga vinna titilinn 2022. En þessi grein er ekki um fótboltann sem slíkan heldur aðra hluti sem tengjast viðburðinum.
FIFA græðir á tá og fingri
Ef litið er til fjárhagslegra mælikvarða þá er viðburðurinn, sem fram fór í Mexíkó, Bandaríkjunum og Kanada, frábærlega vel heppnaður, sumir ganga svo langt að segja FIFA sé raunverulegur sigurvegari mótsins. Áhorfsmet voru slegin í Bandaríkjunum og miðasala gekk rífandi vel og nánast uppselt á alla leiki mótsins þrátt fyrir að miðaverð nær tvöfaldaðist frá mótinu í Katar.
Lægsta verð á úrslitaleikinn var í kringum $6.000 dollarar, meðal miðasöluverð var í kringum $9.300 (miðgildi um $8.000). Til samanburðar var lægsta miðaverð á Ofurskálina (Super Bowl) um $3,286 en meðal miðaverð um $6,555 (miðgildi $5,979).

Tekjur FIFA af heimsmeistaramótinu 2026 eru áætlaðar í kringum 15 milljarðar bandaríkjadala ($15 bn) en voru aðeins um 7.6 milljarðar í Qatar 2022. Það er ýmislegt sem skýrir þessa tekjuaukningu. Sala á leiki gekk almennt gríðarlega vel, opnað var á miðasölu í gegnum endursöluaðila og miðaverð var almennt hátt. Styrktaraðilar lögðu sitt af mörkum og sala á varningi gekk vel. Fjölgun liða og um leið leikja í undankeppninni hafði einnig sitt að segja og umræða er þegar hafin um að fjölga liðum enn frekar úr 48 liðum í 64. Hvort af því verði kemur í ljós.
Áhorfsmet slegin í Bandaríkjunum
Fótbolti (og þá erum við ekki að tala um amerískan fótbolta) hefur átt vaxandi fylgi að fagna og viðburður af því tagi sem World Cup er hefur sannarlega vakið eftirtekt og aukið áhuga á íþróttinni, að minnsta kosti til skamms tíma. Áhorfsmet voru slegin í bandarísku sjónvarpi, bæði á enskumælandi rásum FOX og á spænskumælandi miðlum eins og Telemundi og Peacock. Yfir 22 milljónir manns horfðu til að mynda á úrslitaleikinn á Telemundi sem er 150% aukning frá áhorfi á úrslitaleikinn 2022 á sömu rás.
Þá má bæta því við þetta mót skrifast í sögubækurnar sem einn stærsti veðmálaviðburður í sögunni en áætlað er að veðmál á leiki mótsins hafi numið um 50 milljörðum Bandaríkjadala ($50bn) á heimsvísu sem er ekkert smáræði.
Auglýsingatekjur
Auglýsingar í línulegri dagskrá drógust saman um 14% samanborið við mótið í Katar 2022 ef marka má niðurstöður E4M. Þetta er meðal annars skýrt af tímamismun milli Norður Ameríku og fjölmennra áhorf svæða eins og Indlandi. Auglýsingar í streymi (CTV) vega trúlega upp á móti þessum samdrætti í línulegri dagskrá. Þessar tölur byggja á vöktun auglýsinga í nokkrum útvöldum miðlum og segja ef til vill ekki alla söguna en eru engu að síður vísbending sem áhugavert er að skoða. Í úttektinni þá tóku áfengis- og bílaauglýsingar mest pláss í línulegri dagskrá en bílar og gosdrykkir voru með hæstu hlutdeild auglýsingar í streymi
Rétthafar greiddu háar upphæðir fyrir sýningarrétt en sala auglýsinga og kostanir skiluðu rétthöfum góðri ávöxtun til baka. Vatnshléin skiluðu sínu enda snjöll leið til að stækka auglýsingagluggann í útsendingu og auka auglýsingatekjur. 30 sekúndna auglýsing á FOX kostnaði til að mynda í kringum 200.000-300.000$ dollara (sirka 25-30 milljónir íslenskar krónur) og allt upp í 750.000$ sem eru engir smápeningar eða um 95 milljónir króna.
Auglýsingatekjur í þessum hólfum skiluðu FOX í það minnsta 250 milljónum dollara en tekjur FOX voru trúlega allt að tvöfalt hærri en hóflegustu tölur um auglýsingatekjur gerðu ráð fyrir. Þess má geta að FOX greiddi um 485 milljónir dollara fyrir sýningarréttinn af mótinu svo niðurstaðan er býsna góð fyrir stöðina!
Efnahagslegur ávinningur?
Efnahagslegur ávinningur af risa viðburðum af þessu tagi er sjaldan eins mikill og ætla mætti, áhrifin eru yfirleitt staðbundin og skammvinn. Heimsmeistaramótin í fótbolta eru engin undantekning hvað það varðar. Í þeim borgum þar sem leikir voru haldnir mátti sjá uppgrip í ráðningum í hvers kyns þjónustu svo sem á veitingastöðum, börum og gististöðum. FIFA spáði fyrir að um 185.000 störf sköpuðust í kringum mótið í Bandaríkjunum. Það er samt flest sem bendir til þess að langvinn áhrif af viðburðinum séu fremur lítil og nær sé að tala um uppgrip umfram annað, svona vertíðar-dæmi. Það sem skilar ávinning til langs tíma er fyrst og fremst fjárfesting í innviðum svo sem samgöngum og mannvirkjum, en þau áhrif eru staðbundin.
Áhrifin af stórviðburðum af þessu tagi eru ekki bara jákvæð. Margir forðast að heimsækja borgirnar þar sem leikir fóru fram og óhóflegar verðhækkanir á ýmis konar þjónustu þar sem leikið var, svo sem leigubílum, Uber og Lyft, er ekki endilega til þess fallið að skapa jákvæða umræðu um viðburðahald af þessari stærðargráðu hvað þá að það gleðji íbúa borganna mikið. Hótelbókanir voru verulega undir væntingum þar sem leikið var og í mörgum tilvikum drógust hótelbókanir saman milli ára. Á Wanderstay hótelinu í Houston var nýtingin til dæmis 45% á meðan mótinu stóð samanborið við 70% sama tíma fyrir ári.
Hvað sem öllu líður þá er heimsmeistaramótið í fótbolta að búið. Þetta var heilt yfir frábær skemmtun en kannski er ágætt að taka sér smá pásu á fótbolta, í bili að minnsta kosti.


Comments