Sagan okkar

Birtingahúsið ehf. var stofnað 1. desember árið 2000 að tilstuðlan nokkurra stærstu auglýsenda landsins með það að markmiði að auka fagmennsku við gerð birtingaáætlana. Birtingahúsið var fyrsta ráðgjafafyrirtækið á Íslandi til að sérhæfa sig í gerð birtingaáætlana og er enn í dag eina slíka fyrirtækið sem er óháð framleiðendum auglýsinga

Fræði í framkvæmd

Kjörorð Birtingahússins er „Fræði í framkvæmd“ og endurspeglast í þeim lausnum og þjónustu sem við bjóðum viðskiptavinum okkar. Við höfum allt frá upphafi lagt áherslu á miðlun þekkingar um markaðsmál til auglýsenda í þeim tilgangi að auðvelda faglega ákvarðanatöku við fjárfestingar í auglýsingabirtingum.