Hver erum við

Kjörorð Birtingahússins, „Fræði í framkvæmd“, endurspeglast í þeim lausnum sem við bjóðum. Við höfum allt frá upphafi lagt áherslu á miðlun þekkingar um markaðsmál til auglýsenda í þeim tilgangi að auðvelda faglega ákvarðanatöku við fjárfestingar í auglýsingabirtingum.

Betri nýting markaðsfjár

Betri og ábyrgari nýting markaðsfjár er sameiginlegt markmið okkar og viðskiptavina okkar. Sérhvert vörumerki krefst sértækrar nálgunar í hvert sinn - sem ræðst m.a. af því hvert fyrirtæki þitt er, hvernig samkeppnisumhverfinu er háttað og hver staða vörumerkisins er í samanburði við vörumerki keppinauta.

Yfirsýn og gegnsæi

Birtingahúsið leggur áherslu á auðvelt aðgengi að upplýsingum og fullkomið gegnsæi. Í því augnamiði hefur Birtingahúsið þróað birtingakerfi sem allir viðskiptavinir Birtingahússins fá aðgang að. Í birtingakerfinu hefur þú yfirsýn yfir allar auglýsingabirtingar, færð aðgang að öllum birtingaáætlunum sem hafa verið gerðar ásamt upplýsingum um birtingakostnað, val á miðlum og hlutdeild þeirra í birtingaáætlunum. Með skýra yfirsýn er með markvissari hætti hægt að tryggja að vörumerki þitt fái nægjanlegt áreiti, koma í veg fyrir ofbirtingar og forðast óþarfan kostnað

Nýtum tímann vel

Við sjáum um auglýsingabirtingar fyrir nokkur af þekktustu vörumerkjum landsins í flestum vöruflokkum. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og sjáum hvað við getum gert í sameiningu - við tökum vel á móti auglýsendum sem vilja vera fremstir í sinni röð!