Leitarvélar (search)

Kemur vefsíðan þín ekki upp í leitarniðurstöðum leitarvéla? Sýnileiki á netinu er öllum fyrirtækjum nauðsynlegur. Stór hluti fólks notar leitarvélar til að afla sér upplýsinga eða leita að vörum og þjónustu. Ef fyrirtæk þitt kemur ekki upp í leitarvélum er hætt við að þú farir á mis við dýrmætt tækifæri til að koma vöru og þjónustu á framfæri til neytenda.

Leitarvélabestun (SEO)

Bestun fyrir leitarvélar snýst um að fá vefsíðu fyrirtækisins til að birtast ofarlega í leitarniðurstöðum leitarvéla. Þessi vinna er fyrst og fremst markaðsleg en að litlu leyti tæknileg. Hana verður að nálgast í því samhengi.

Íslendingar leita á netinu

Íslendingar eyða miklum tíma á netinu. Samkvæmt rannsóknum ver ríflega 70% þeirra sem hafa aðgang að interneti meira en 7 klukkutímum á viku á netinu og tæp 70% (16-75 ára) nota Google leitarvélina vikulega eða oftar (Capacent 2010). Sýnileiki á leitarvélum er því afar mikilvægur. Þá er mikilvægt að huga að samspili netmiðla við aðra offline miðla eins og auglýsingar í dagblöðum, sjónvarpi, tímaritum, útvarpi eða í útimiðlum, en áhrif auglýsinga á netnotkun er vel þekkt og nokkuð sem þarf alltaf að huga að.