Leitarherferðir (PPC)

Það er mikilvægt að huga að sýnileika vörumerkja á leitarvélum hvort sem um er að ræða kostaða tengla eða í almennum (organic) leitarniðurstöðum.

Sýnileiki á leitarvélum mikilvægur

Leitarherferðir eru árangursrík leið til að ná til neytenda og færa vörumerki nær neytendum. Stór hluti neytenda leitar að vörum og þjónustu á netinu. Rannsóknir benda til þess að um 70% þeirra sem kaupa í gegnum netið noti leitarvélar til að afla sér upplýsinga áður en gengið er frá kaupum. 

Það er afar mikilvægt að huga að leitarherferðum samhliða öðrum markaðssamskiptum, þ.m.t. auglýsingum í öðrum miðlum eins og dagblöðum, sjónvarpi, útvarpi eða útimiðlum. Rannsóknir sýna að stór hluti fólks vafrar á netinu samhliða því að horfa á sjónvarp og stór hluti fólks leitar að vörum og þjónustu sem það sér auglýst í auglýsingahléi. Í þessu felast mikil tækifæri sem auglýsendur þurfa að veita athygli. Ráðgjöf Birtingahússins miðar að því að aðstopða fyrirtæki að nýta leitarvélar í markaðsstarfi sínu og samhæfa notkun ólíkra miðla.

Umsjón og eftirfylgni leitarherferða

Við aðstoðum fyrirtæki við að móta sér stefnu í notkun leitarvéla, setja upp leitarherferðir, skilgreina leitarorð og samþætta leitarherferðir við önnur markaðssamskipti.