Birtingaáætlanir

Birtingahúsið veitir auglýsendum ráðgjöf um auglýsingabirtingar, uppbyggingu auglýsingaherferða og notkun miðla. Skilningur á þörfum auglýsenda, þekking á virkni og notkun fjölmiðla, færni í samningum og skilvirk framkvæmd er lykillinn að faglegri birtingaráðgjöf Birtingahússins. Markmið okkar miðar ávallt að því að hámarka nýtingu auglýsingafjár fyrir viðskiptavini okkar.  

Gerð birtingaáætlana

Þjónusta Birtingahússins byggir á faglegri ráðgjöf um æskilegt auglýsingaáreiti, nákvæmum birtingaáætlunum, gerð samninga við fjölmiðla og fjárhagslegu utanumhaldi.  Birtingahúsið sérhæfir sig í gerð birtingaáætlana og er algerlega óháð framleiðslu auglýsinga. Þannig tryggjum við að að ráðgjöf okkar byggi á faglegum grunni og taki mið af þörfum auglýsenda.  Hjá Birtingahúsinu starfar vel menntað starfsfólk með áralanga reynslu af markaðsmálum.

Gæðamál

Hjá Birtingahúsinu eru innri gæðamál í fyrirrúmi. Við leggjum mikla áherslu á ábyrgð og rekjanleika ásamt stöðugri upplýsingagjöf til viðskiptavina.  Allar birtingaáætlanir og upplýsingar um auglýsingakaup eru skráð í birtingakerfi sem er aðgengilegt auglýsendum í gegnum heimasvæði viðskiptavina. Ábati auglýsenda er verulegur og felst meðal annars í fullkomnum rekjanleika, virku innra eftirliti og háu þjónustustigi.