Birtingaáætlanir

Birtingahúsið veitir auglýsendum ráðgjöf um auglýsingabirtingar, uppbyggingu auglýsingaherferða og notkun miðla. Skilningur á þörfum auglýsenda, þekking á virkni og notkun fjölmiðla, færni í samningum og skilvirk framkvæmd er lykillinn að faglegri birtingaráðgjöf Birtingahússins. Markmið okkar miðar ávallt að því að hámarka nýtingu auglýsingafjár fyrir viðskiptavini okkar.  

Gerð birtingaáætlana

Þjónusta Birtingahússins byggir á faglegri ráðgjöf um æskilegt auglýsingaáreiti, nákvæmum birtingaáætlunum, gerð samninga við fjölmiðla og fjárhagslegu utanumhaldi.  Birtingahúsið sérhæfir sig í gerð birtingaáætlana og er algerlega óháð framleiðslu auglýsinga. Þannig tryggjum við að að ráðgjöf okkar byggi á faglegum grunni og taki mið af þörfum auglýsenda.  Hjá Birtingahúsinu starfar vel menntað starfsfólk með áralanga reynslu af markaðsmálum.

Gæðamál

Hjá Birtingahúsinu eru innri gæðamál í fyrirrúmi. Við leggjum mikla áherslu á ábyrgð og rekjanleika ásamt stöðugri upplýsingagjöf til viðskiptavina.  Allar birtingaáætlanir og upplýsingar um auglýsingakaup eru skráð í birtingakerfi sem er aðgengilegt auglýsendum í gegnum heimasvæði viðskiptavina. Ábati auglýsenda er verulegur og felst meðal annars í fullkomnum rekjanleika, virku innra eftirliti og háu þjónustustigi.

 

Leitarvélar (search)

Kemur vefsíðan þín ekki upp í leitarniðurstöðum leitarvéla? Sýnileiki á netinu er öllum fyrirtækjum nauðsynlegur. Stór hluti fólks notar leitarvélar til að afla sér upplýsinga eða leita að vörum og þjónustu. Ef fyrirtæk þitt kemur ekki upp í leitarvélum er hætt við að þú farir á mis við dýrmætt tækifæri til að koma vöru og þjónustu á framfæri til neytenda.

Leitarvélabestun (SEO)

Bestun fyrir leitarvélar snýst um að fá vefsíðu fyrirtækisins til að birtast ofarlega í leitarniðurstöðum leitarvéla. Þessi vinna er fyrst og fremst markaðsleg en að litlu leyti tæknileg. Hana verður að nálgast í því samhengi.

Íslendingar leita á netinu

Íslendingar eyða miklum tíma á netinu. Samkvæmt rannsóknum ver ríflega 70% þeirra sem hafa aðgang að interneti meira en 7 klukkutímum á viku á netinu og tæp 70% (16-75 ára) nota Google leitarvélina vikulega eða oftar (Capacent 2010). Sýnileiki á leitarvélum er því afar mikilvægur. Þá er mikilvægt að huga að samspili netmiðla við aðra offline miðla eins og auglýsingar í dagblöðum, sjónvarpi, tímaritum, útvarpi eða í útimiðlum, en áhrif auglýsinga á netnotkun er vel þekkt og nokkuð sem þarf alltaf að huga að.

 

Leitarherferðir (PPC)

Það er mikilvægt að huga að sýnileika vörumerkja á leitarvélum hvort sem um er að ræða kostaða tengla eða í almennum (organic) leitarniðurstöðum.

Sýnileiki á leitarvélum mikilvægur

Leitarherferðir eru árangursrík leið til að ná til neytenda og færa vörumerki nær neytendum. Stór hluti neytenda leitar að vörum og þjónustu á netinu. Rannsóknir benda til þess að um 70% þeirra sem kaupa í gegnum netið noti leitarvélar til að afla sér upplýsinga áður en gengið er frá kaupum. 

Það er afar mikilvægt að huga að leitarherferðum samhliða öðrum markaðssamskiptum, þ.m.t. auglýsingum í öðrum miðlum eins og dagblöðum, sjónvarpi, útvarpi eða útimiðlum. Rannsóknir sýna að stór hluti fólks vafrar á netinu samhliða því að horfa á sjónvarp og stór hluti fólks leitar að vörum og þjónustu sem það sér auglýst í auglýsingahléi. Í þessu felast mikil tækifæri sem auglýsendur þurfa að veita athygli. Ráðgjöf Birtingahússins miðar að því að aðstopða fyrirtæki að nýta leitarvélar í markaðsstarfi sínu og samhæfa notkun ólíkra miðla.

Umsjón og eftirfylgni leitarherferða

Við aðstoðum fyrirtæki við að móta sér stefnu í notkun leitarvéla, setja upp leitarherferðir, skilgreina leitarorð og samþætta leitarherferðir við önnur markaðssamskipti.

   

Vörumerkjarýni

Vörumerkjarýni Birtingahússins miðar að því að aðstoða fyrirtæki við uppbyggingu vörumerkja og skilgreina leiðir til að auka vörumerkjavirði til lengri tíma. Að vinnu lokinni eiga vörumerkjastjórar, markaðsstjórar og aðrir sem koma að markaðssetningu að hafa skýra sýn á vörumerkið, stöðu þess gagnvart samkeppnismerkjum og hvaða leiðir skal fara í uppbyggingu þess.

Skýr markmið og framtíðarsýn

Við uppbyggingu vörumerkis þarf að skoða markhópa, keppinauta og staðfærslu vörumerkis. Með staðfærslu er átt við þá mynd sem við viljum ná fram í huga neytenda, þ.e. það sem er sameiginlegt og það sem aðgreinir okkar vörumerki frá samkeppnismerkjum. Framtíðarsýn, skýr markmið og aðgerðaáætlun til að ná þeim markmiðum sem sett eru fram eru forsenda þess að við náum árangri.

 

Markaðsgreiningar

Viltu vita meira um samkeppnisaðila eða neytendur? Markaðsgreining Birtingahússins, samkeppnisgreining og neytendagreining, veitir auglýsendum annars vegar upplýsingar um hlutdeild á auglýsingamarkaði (sjónvarp, dagblöð og tímarit) og hins vegar upplýsingar um neytendahegðun, svo sem kaupáform, val á vörumerkjum, fjölmiðlaneyslu og fleira.

Samkeppnisgreining

Með samkeppnisgreiningu fá auglýsendur upplýsingar um hlutdeild sína á auglýsingamarkaði (share of voice) og hlutdeild keppinauta. Auglýsendur fá þannig upplýsingar um stöðu gagnvart keppinautum, hvernig vægi einstakra miðla er háttað á auglýsingamarkaðnum og þróun auglýsingabirtinga. Hægt er að greina hlutdeild út frá auglýsendum, vöruflokkum og einstökum vörumerkjum.

Neytendagreining

Upplýsingar um neyslu, kaupáform eða val á vörumerkjum veitir auglýsendum innsæi um vörumerki og neytendahegðun. Hægt er að greina neytendahegðun og neyslu á vörumerkjum eftir lýðfræðilegum breytum (aldur, kyn, búseta, tekjur) en einnig eftir áhugamálum og lífstílshópum og fleira. Upplýsingarnar gagnast vel við undirbúning markaðsherferða, við auglýsingagerð og við mat á árangri markaðsstarfs.

   

Fleiri greinar...

Síða 1 af 2