Nýir pistlar

Birtingahúsið er framúrskarandi fyrirtæki

Hugi Sævarsson og Magnús Þór SchevingBirtingahúsið var á dögunum heiðrað sem eitt af framúrskarandi fyrirtækjum síðastliðins árs. Þetta er staðfest með ítarlegri úttekt CreditInfo á öllum skráðum fyrirtækjum landsins í Hlutafélagaskrá.

Ríflega 32.000 fyrirtæki eru þar skráð en einungis innan við 1% þeirra uppfylla þau ströngu skilyrði sem þurfa að vera fyrir hendi til að hljóta útnefninguna.

Vottun sem þessi tíðkast víða erlendis, og eru skilyrðin þá yfirleitt ekki jafn ströng. Hér á landi er meðal annars lagt til grundvallar að minna en 0,5% líkur séu á alvarlegum vanskilum, rekstrarafgangur sé jákvæður þrjú ár í röð og eiginfjárstaða 20% eða hærri síðastliðin þrjú ár.

Birtingahúsið er eina birtingafyrirtækið sem er á listanum yfir framúrskarandi fyrirtæki í ár.

Nánari upplýsingar um málið má finna á heimasíðu CreditInfo, www.creditinfo.is.

 Á myndinni má sjá Huga Sævarsson, framkvæmdastjóra Birtingahússins, taka við viðurkenningunni frá Magnúsi Þór Scheving fulltrúa CreditInfo. 

 

Twitter

Birtingahusid: Farsímaeign fólks í USA. Skyldi þetta vera svipað hér á landi? http://t.co/Crj9O7fW
Birtingahusid: Birtingahúsið er í flokki framúrskarandi fyrirtækja á landinu og við erum stolt af því... http://t.co/cri5KXxp

Hafðu samband

Við erum hér:

Laugavegur 174 (3 hæð), 105 Reykjavík
Sími/Tel: +354 569 3800
Netfang/Email: birting@birtingahusid.is 

 

Fylgstu með okkur

icon-twitter    icon-facebook    Google+