100 verðmætustu alþjóðlegu vörumerkin
Ár hvert birtir Interbrand í samvinnu við Bloomberg Busniessweek lista og úttekt á 100 verðmætustu alþjóðlegu vörumerkjunum. Sem fyrr er það Coca-Cola sem trónir á toppnum, og litlar breytingar eru á sætaskipan tíu efstu. Hér fyrir neðan má sjá sætaskipan 10 verðmætustu. Apple er eina vörumerkið sem er nýtt á listanum, hin merkin voru í nákvæmlega sömu sætum í fyrra en Nokia fellur úr 8. sætinu í það fjórtánda.
Ýmislegt er athyglisvert í úttektinni. Meðal annars má nefna að flest tækni- og samskiptavörumerkin bæta hressilega við sig. Stóru löndin, Kína og Indland, sækja verulega í sig veðrið. Frumkvæði og forysta á þeim mörkuðum skiptir verulegu máli, ekki síst ef horft er til vaxtatækifæra í framtíðinni. Í fjölmiðlaumhverfinu er klárt að „valdataflið“ er að breytast. Fólk á auðveldara að koma skoðunum sínum á framfæri og taka þátt í að móta umhverfið, meðal annars með samfélagsmiðlunum (Twitter, Facebook og fl.). Tvö vörumerki koma inn á listann yfir þau 100 verðmætustu í fyrsta sinn; HTC og John Deere (vinnuvélar, tæki og fl.). Nissan kemur aftur inn á hann eftir stutta fjarveru.
10 verðmætustu vörumerkin 2011 (í milljónum dollara)
| Sæti | Vörumerki | Verðmæti | Vs. 2010 |
| 1. |
Coca-Cola |
71.861 |
2% |
| 2. |
IBM |
69.905 |
8% |
| 3. | Microsoft |
59.087 |
-3% |
| 4. |
55.317 |
27% |
|
| 5. | GE |
42.808 |
0% |
| 6. | McDonalds |
35.593 |
6% |
| 7. | Intel |
35.217 |
10% |
| 8. | Apple |
33.492 |
58% |
| 9. | Disney |
29.018 |
1% |
| 10. | Hewlett-Packard |
28.479 |
6% |
Interbrand mælir og verðmetur vörumerki út frá ýmsum þáttum, bæði innri og ytri. Fjárhagsleg staða skiptir miklu á meðan aðrir þættir hafa minna vægi. Dæmi um innri þætti eru viðbragðsflýtir (t.d. hve fljótt er brugðist við breytingum á mörkuðum), vernd (lagaleg vernd, einkaleyfi og fl.), aðgreining (e. differentiation) og áhrif (umtal og álit ólíkra hópa gagnvart vörumerkinu).
____________
Heimild & nánari upplýsingar: Best Global Brands 2011
| < Fyrri | Næsta > |
|---|


