Birtingahúsið hefur mikla reynslu af gerð vöruskiptasamninga í auglýsingaviðskiptum. Vöruskiptasamningar geta oft verið hagkvæm leið til að kaupa auglýsingabirtingar án þess að rýra framlegð af annarri sölu. Við vinnum náið með auglýsendum og fjölmiðlum til að tryggja hámarks virði og að vöruskipti séu í takt við markaðsstefnu auglýsanda.
Birtingahúsið
Birtingahúsið veitir auglýsendum faglega ráðgjöf um val á auglýsingabirtingum með það að markmiði að hámarka nýtingu auglýsingafjár. Gerð birtingaáætlana er í eðli sínu hagræn – en fyrir okkur er starfið svo miklu meira. Enda trúum við því að hámarks árangur náist ekki nema til komi innsæi og skilningur á virkni fjölmiðla. Okkur er treyst fyrir birtingum fyrir yfir 200 vörumerki, þar á meðal mörg elstu og virtustu vörumerki landsins.