Um Þig
Þér er umhugað um vörumerkin þín en telur að það megi gera betur. Þér finnst líka mikilvægt að geta sýnt fram á ábyrga stjórnun markaðsfjár. Í sameiningu gerum við okkur grein fyrir að öll vörumerki eru sérstök og það að rækta vörumerki krefst sértækrar nálgunar í hvert sinn - sem ræðst m.a. af því hvert fyrirtæki þitt er, fyrirtækjamenningin, samkeppnisumhverfið og hvar vörumerkið og viðskiptavinir eru stödd í dag.

Það gildir einu hvernig ástatt er, við getum hjálpað. Að neðan eru nokkar spurningar til að koma umræðunni af stað. Þegar við hittumst skulum við skoða málin betur og sýna þér hvernig við höfum leyst þetta fyrir önnur fyrirtæki.
  • Er sérstakur viðburður framundan sem verður að ná mikilli athygli yfir stuttan tíma?
  • Ertu með nýtt vörumerki eða nýjung sem þarf að komast hratt í umfjöllun og ná vitund fólks?
  • Ertu með þroskað vörumerki sem þarfnast viðhalds?
  • Viltu að auglýsingarnar þínar séu staðsettar á besta stað í bestu auglýsingahólfunum?
  • Viltu að auglýsingaáreiti dreifist rétt eftir dögum og yfir tíma yfirleitt?
  • Viltu að auglýsingaáreiti sé dreift í takt við söluáætlanir?
  • Viltu fá svör við því af hverju auglýsingakostnaður hefur hækkað án sjáanlegs árangurs?
  • Viltu greiða sanngjarnt gjald fyrir birtingaráðgjöf og vera upplýst(ur) um hve mikið þú greiðir yfir höfuð?
  • Viltu hafa daglega yfirsýn yfir það markaðstarf sem er í gangi?
  • Viltu hafa skýra aðgreiningu milli auglýsingahönnunar og auglýsingabirtinga og þar með draga úr hættunni á birtingastefna stýrist af auglýsingaframleiðslunni?
  • Viltu hafa skýra birtingastefnu fyrir hvert vörumerki?
  • Viltu hafa skýrar forsendur fyrir því hvernig vali á auglýsingaplássi fyrir þig er háttað?
  • Viltu nýta daginn í annað en að svara fyrirspurnum frá auglýsingasölum?
  • Viltu samstarfsaðila sem aðstoðar þig með virkum hætti að halda fjárhagsáætlun?
  • Viltu vera viss um að þú sért að auglýsa nóg – en samt ekki of mikið?
Hin fyrirtækin sem við störfum fyrir eiga það sammerkt að vera merkilegustu auglýsendur á Íslandi – það finnst okkur að minnsta kosti. Við birtum m.a. fyrir stærsta bankann, helsta matvælaframleiðandann, frambærilegustu almennatengslaskrifstofuna, frægasta kaffið, þekktustu gosdrykkina, kostamestu matvörubúðirnar, öruggasta tryggingafélagið og besta lífeyrissjóðinn.

Samanlagt birtum við hátt í 3000 auglýsingar á mánuði – það eru 100 auglýsingar á dag!
Hafðu samband og sjáum hvað við getum gert í sameiningu - við tökum vel á móti auglýsendum sem vilja vera fremstir í sinni röð!