Í þágu auglýsenda
Birtingahúsið ehf. var stofnað 1. desember árið 2000 að tilstuðlan nokkurra stærstu auglýsenda landsins með það að markmiði að auka fagmennsku við gerð birtingaáætlana.

Birtingahúsið var fyrsta ráðgjafafyrirtækið á Íslandi til að sérhæfa sig í gerð birtingaáætlana og er enn í dag eina slíka fyrirtækið sem er óháð framleiðendum auglýsinga.
Fræði í framkvæmd
Kjörorð Birtingahússins, „Fræði í framkvæmd“, endurspeglast í þeim lausnum sem við bjóðum. Við höfum allt frá upphafi lagt áherslu á miðlun þekkingar um markaðsmál til auglýsenda í þeim tilgangi að auðvelda faglega ákvarðanatöku við fjárfestingar í auglýsingabirtingum.

Í því augnamiði höldum við m.a. reglulega fagfundi með auglýsendum og stöndum fyrir námstefnum með þekktum erlendum fyrirlesurum í samstarfi við Samtök auglýsenda (www.sau.is).