| Þjónusta | ![]() |
| Þjónusta Birtingahússins miðar að því að hámarka nýtingu auglýsingafjár viðskiptavina sinna. Lykillinn að árangri okkar felst í skilningi á þörfum auglýsenda, þekkingu á virkni fjölmiðla, færni í samningum og skilvirkri framkvæmd. Þjónusta okkar byggir á faglegri ráðgjöf um æskilegt auglýsingaáreiti, nákvæmum birtingaáætlunum, gerð samninga við fjölmiðla og fjárhagslegu utanumhaldi. Við leggjum mikla áherslu á ábyrgð og rekjanleika ásamt stöðugri upplýsingagjöf til viðskiptavina. |


